Nýi sjónaukinn, PROSTAFF 7S, hefur verið endurhannaður frá grunni til að bæta bæði stíl og notagildi. Njóttu nýs optísks kerfis til fulls. Það var búið til sérstaklega fyrir PROSTAFF 7S línuna og skilar skörpum myndum í sláandi gæðum. Vatnsheldur og móðulaus og er með bætt grip svo hann verði auðveldari í meðförum við öll veðurskilyrði. PROSTAFF 7S er gerður til að skoða fugla og dýralíf. Því var lykilatriði að hann væri þægilegur í notkun. Mikill gaumur var gefinn að smáatriðum eins og hnúðnum á fókushringnum, þannig að auðvelt og þægilegt er að stilla sjónaukann.
Fjölhúðaðar linsur og prismu skila yfirburða eftirmyndum
Prismu með leiðréttingu tryggja hágæða upplausn
Spegilprismu með mikilli speglun til að auka birtu mynda
Mikil augnfjarlægð tryggir skýrt sjónsvið, jafnvel fyrir þá sem nota gleraugu
Stillanlegt gúmmí utan um augngler með fjölþrepa smellistillingu auðveldar rétta staðsetningu augans
Einstaklega léttur
Vatnsheldur (allt að 1m/3,3 ft. í 10 mínútur) og laus við móðu vegna köfnunarefnisins
Gúmmístyrking til varnar höggum og þétt, þægilegt grip
Vistvænt sjóngler (laust við blý og arsenik) er notað í allar linsur og prismu